Borealis samstarfið samanstendur af 9 flugleiðsöguveitendum í Norður-Evrópu, Avinor (Noregur), Fintraffic ANS (Finnland), Irish Aviation Authority (Írland), Avians (Ísland), EANS (Eistland), LGS (Lettland), LFV (Svíþjóð), UK NATS (Bretland) og Naviair (Danmörk). Stofnað árið 2012, Borealis er viðskiptamiðað samstarf flugleiðsögu-veitenda sem ætlað er að efla þjónustuveitingu þeirra bæði í afköstum sem og kostnaði. Að auki virkar Borealis sem upplýsingamiðlunarvettvangur varðandi þróun flugmála innan Evrópu hvað varðar evrópska löggjöf og stefnur fyrir almenningsflug. Avians er virkur þátttakandi í öllum verkefnum Borealis Alliance og þ.á.m "Free Route Airspace" verkefninu.