Fara á efnissvæði

Veð­ur­þjón­usta á flug­völl­um

Avians hefur umsjón með veðurathugunum á flestum flugvöllum landsins.

Veðurþjónusta á flugvöllum

Avians er þjónustuveitandi flugtengdrar veðurþjónustu ásamt Veðurstofu Íslands (VÍ) sem fer með hlutverk aðalveðurstofu svæðisins, (VÍ) ber ábyrgð á flugtengdri veðurþjónustu á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli.

Veðurþjónusta á flugvöllum

Avians hefur umsjón með veðurathugunum á flestum flugvöllum landsins. Starfsmenn og/eða samstarfsaðilar sjá um veðurþjónustu sem felst

ýmist í gerð og dreifingu reglulegra veðurskeyta eða veðurupplýsingum samkvæmt beiðni. Á nokkrum stöðum er hægt að hringja í sjálfvirkar veðurstöðvará flugvöllunum eða í nágrenni þeirra.

Í Keflavík, Akureyri og Reykjavík eru útbúin sérstök skeyti sem dreift er í flugvallarútvarpi staðarins, ATIS.

Flugvellir á vegum eru misjafnlega búnir veðurtækjum og -viðmótum, og því getur verið munur á því hvað birtist undir sérhverjum flugvelli.

Upplýsingar um veður á flugvöllum og í nágrenni þeirra


Fyrir sérhvern flugvöll er birt allt í senn; rauntímaupplýsingar, veðurlýsingar, veðurspár og viðvaranir.

Rauntímaupplýsingar eru bein birting eða lestur frá mælitækjum flugvallanna ásamt veðri og færð frá Vegagerðinni

Veðurlýsingar fyrir flugvellina eru útbúnar á skeytaformi (METAR og SPECI) og einnig lesnar inn í flugvallarútvarp ATIS.

Veðurspár VÍ birtast á skeytaformi (TAF), í spáriti, eða hitariti. Viðvaranir fyrir flug eru á skeytaformi (SIGMET)

Fyrirvarar á veðurupplýsingum

Avians undirstrikar eftirfarandi vegna opinberrar birtingar á rauntímaupplýsingum frá mælitækjum flugvalla:

Þessi gögn eru eingöngu ætluð sem ítarefni við þær veðurupplýsingar sem gefnar eru út frá tilgreindum flugvöllum, eins og METAR og SPECI, en koma alls ekki í staðinn fyrir þær.

Athuga ber að öll gögnin eru óyfirfarin rauntímagögn og ábyrgist Isavia ekki að þau séu ávallt aðgengileg og uppfærð. Mæligildi eiga að uppfærast sjálfvirkt á tveggja mínútna fresti.

Veðurathuganir úr veðurstöðvum eiga að uppfærast sjálfvirkt á hálftíma fresti. Aukalegar sjálfvirkar veðurathuganir birtast við skyndileg veðrabrigði sem fara yfir ákveðin mörk.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.