Fara á efnissvæði

Efra loft­rými Græn­lands

Nuuk FIR svæðið nær yfir allt Grænland upp að 19,500 fetum.

Avians veitir flugleiðsöguþjónustu í efra loftrými Nuuk FIR fyrir norðan 63°30'N sem nær yfir um 3,7 milljónir ferkílómetra svæði en það er um 70% af heildarflugstjórnarsvæði Avians. Avians sinnir flugleiðsöguþjónustu í efra loftrými Nuuk FIR fyrir hönd íslenska ríkisins en sú þjónusta hófst með milliríkjasamningi Íslands og Danmerkur sem undirritaður var 1976.

Avians veitir einnig aðflugs- og flugferlahönnunarþjónustu í Grænlandi ásamt flugprófunum og viðhaldi og uppsetningu á fjarskipta-, kögunar- og leiðsögubúnaði.

Dótturfélag Avians, Suluk APS sinnir turn- og aðflugsþjónustu á Kangerlussuaq flugvelli.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.