Fara á efnissvæði

Flug­fjar­skipti

Fjarskiptastöðin er staðsett í Grafarvogi.

Fjarskipti við flugvélar á flugi yfir Norður-Atlantshaf er mikilvægur hluti af þjónustu Avians. Starfsemin tryggir örugg og skilvirk samskipti fyrir viðskiptavini okkar í gegnum flugfjarskiptastöðina Iceland Radio. Árlega eru afgreidd um 500.000 skeyti við flugvélar auk þess sem að enn fleiri skeytum er miðlað um AFTN/AMHS skeytarofa.

Iceland Radio veitir talþjónustu á stuttbylgjum og metrabylgjum í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Fjarskiptin fara fram á ensku og felast í því að senda og taka við skeytum til að tryggja öryggi flugvéla á leið sinni yfir Norður Atlantshafið. Fjarskiptamenn bera á milli staðarákvarðanir flugvéla, hæða-, hraða- og leiðabreytingar, veðurskeyti, upplýsingar um lendingarskilyrði flugvalla, neyðarboð frá flugvélum, upplýsingar til og frá flugrekendum, ásamt því að veita talsamskipti við flugumsjón flugfélaga ofl. Skeytum frá flugvélum er dreift eftir atvikum til flugstjórnarmiðstöðva, veðurstofu, flugvalla og flugrekenda. Hlutverk Fjarskiptamanna er að tryggja stöðugt fjarskiptasamband við flugvélar og úthluta viðeigandi fjarskiptatíðnum hverju sinni.

Frá árinu 2006 hefur Iceland Radio verið í samstarfi við fjarskiptastöðina Shanwick Radio í Ballygirreen á Írlandi og hefur sinnt þjónustu í írska flugstjórnarsvæðinu í samvinnu við Shanwick Radio. Jafnframt getur írska fjarskiptastöðin veitt stuðning við starfsemi Iceland Radio í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Stöðvarnar eru full samtengdar bæði með fluggagnakerfi og fjarskiptakerfi og geta þannig samnýtt starfskrafta sína og tækjabúnað. Þetta samstarf hefur leitt af sér aukna hagkvæmni í rekstri stöðvanna með bættri þjónustu og lægri kostnað.

Hjá Flugfjarskiptum starfa um 40 manns.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.