Fara á efnissvæði

Flug­leið­saga

Heimsálfa á milli

Hlutverk Avians er að veita íslenskum og erlendum loftförum flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu og á íslenskum flugvöllum. Algengt er að skipta flugleiðsöguþjónustu (ANS) í eftirfarandi grunnþjónustur:

  • Flugumferðarþjónustu (ATS)
  • Flugstjórnarþjónustu (ATC)
  • CNS þjónustu sem skiptist: Fjarskiptaþjónustu (COM), Leiðsöguþjónustu (NAV), Kögunarþjónustu (SUR)
  • Flugveðurþjónustu (MET)
  • Upplýsingaþjónustu flugmála (AIS)

Að auki tilheyra eftirfarandi þjónustur starfsemi Avians:

  • Loftrýmisstjórnun (ASM)
  • Flæðisstjórnun flugumferðar (ATFM)
  • Gagnaþjónusta (DAT)
  • Flugferlahönnun (FPD)

Flugleiðsöguþjónusta

Hjá Avians starfa um 270 manns, þar af eru um 100 flugumferðarstjórar, 20 fluggagnafræðingar, 40 flugfjarskiptamenn, 60 tæknimenn og um 15 manns sem sinna öryggis- og gæðamálefnum, kennslu og þjálfun, rannsóknum og þróun og stjórnun.

Kostnaður flugleiðsöguþjónustu er að langstærstum hluta greiddur af notendagjöldum, annars vegar yfirflugsgjöldum og hins vegar af notendagjöldum í innanlandsflugi og aðflugi. Fyrir yfirflugsgjöld og alþjóðaflugþjónustuna gildir svokallaður Joint Finance samningur við Alþjóðaflugmálastofnunina (ICAO) sem er aðildarsamningur 23 ríkja þar sem fjármögnun á flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu er skilgreind. Alþjóðaflugmálastofnunin hefur yfirumsjón með framkvæmd samningsins en árlega halda Avians og stofnunin upplýsingafundi með fulltrúum notenda þar sem farið er yfir þjónustuna og þróun kostnaðar.

Á Norður-Atlantshafi hafa fyrirtæki sem veita flugleiðsöguþjónustu með sér formlegt samráð undir hatti North Atlantic Systems Planning Group, NAT/SPG, sem er ein af nefndum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Á þeim vettvangi er ákveðið hvernig þjónustunni skal háttað, fylgst með öryggis- og gæðamarkmiðum og þróun nýrrar tækni og aðferðafræði í flugleiðsögu. Samtök flugrekenda og fagfélaga taka virkan þátt í því starfi.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.