Fara á efnissvæði

Flug­stjórn­ar­mið­stöð

Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur er staðsett í á Nauthólsvegi í Reykjavík. Þar fer fram stjórnun flugumferðar í aðflugi og í leiðarflugi innanlands og í úthafssvæði sem sameiginlega er kallað íslenska flugstjórnarsvæðið.

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík

Meginhlutverk flugstjórnarmiðstöðvar Reykjavíkur er að veita öllu flugi innan íslenska flugstjórnarsvæðisins örugga, skilvirka og hagkvæma flugumferðar- og flugupplýsingaþjónustu.

Hjá Avians starfa um 290 manns, þar af um 120 flugumferðarstjórar og fluggagnafræðingar. Að auki eru starfandi sérfræðingar í stoðdeildum svo sem verkfræðingar, hugbúnaðarsérfræðingar, rafeindavirkjar, rafvirkjar og fleiri. Hlutfall kvenna er um 38% og er meðalaldurinn rétt rúmlega 40 ár.

Margir starfsmenn Flugstjórnarmiðstöðvar, flugumferðarstjórar jafnt sem fluggagnafræðingar, sinna öðrum störfum hjá öðrum deildum samhliða störfum sínum í Flugstjórnarmiðstöð. Þessi störf geta verið margvísleg og hjá mismunandi deildum svo sem hjá Þjálfun, Þróun og rannsóknum, Rannsóknarhópi atvika eða við kerfishönnum og prófanir. Nokkrir starfsmenn starfa einnig á skrifstofu Flugstjórnarmiðstöðvar.

Að meðaltali fara um 550 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.