Fara á efnissvæði
Til baka

Av­ians og flug­ferla­hönn­un fyr­ir nýj­ustu flug­velli Græn­lands

Nýja og gamla flugbrautin í Ilulissat.
Undanfarin ár hefur Avians tekið þátt í einni stærstu uppbyggingu fluginnviða í Grænlandi frá upphafi.

Undanfarin ár hefur Avians tekið þátt í einni stærstu uppbyggingu fluginnviða í Grænlandi frá upphafi þar sem flugferlahönnuðir Avians hafa hannað flugferla fyrir nýju 2.200 metra flugbrautirnar í Nuuk og Ilulissat auk nýju 1.500 metra flugbrautarinnar í Qaqortoq á Suður-Grænlandi.

Nuuk – nýr alþjóðaflugvöllur

Þann 28. nóvember 2024 var ný 2.200 metra flugbraut í Nuuk (BGGH) tekin í notkun. Með nýju brautinni opnaðist möguleiki á reglubundnu millilandaflugi með stærri loftförum en áður og flugvöllurinn tók við hlutverki Syðri Straumfjarðar (BGSF) sem aðal alþjóðaflugvöllur Grænlands.

Verkefnið í Nuuk var umfangsmikið, þar sem hannaðir voru bæði hefðbundnir aðflugsferlar (ILS) og aðflugsferlar sem byggja á hæfisbundinni leiðsögu (PBN/RNP), auk RNP brottflugsferla fyrir nýju flugbrautina. Alls voru gefin út um 15 ný aðflugs- og brottflugskort.

Nýja 2.200 m flugbrautin í Nuuk stuttu fyrir opnun í nóvember 2024. (Heimild: Mynd fengin hjá Greenland Airports)
Nýja 2.200 m flugbrautin í Nuuk stuttu fyrir opnun í nóvember 2024. (Heimild: Mynd fengin hjá Greenland Airports)
 _ILS aðflug að braut 22 í Nuuk (Heimild: AIP Greenland)_
_ILS aðflug að braut 22 í Nuuk (Heimild: AIP Greenland)_

Qaqortoq – nýr flugvöllur byggður frá grunni á Suður-Grænlandi

Þann 16. apríl 2026 opnaði nýr flugvöllur í Qaqortoq (BGQO) á Suður-Grænlandi. Flugvöllurinn er byggður frá grunni og er með 1.500 metra flugbraut. Við opnun hans var almennri flugumferð um Narsarsuaq (BGBW) hætt, en flugvöllurinn mun áfram gegna hlutverki þyrluvallar fyrir svæðið.

Flugvöllurinn er sérstakur að því leyti að um er að ræða algerlega nýjan flugvöll á nýjum stað, en slík verkefni hafa orðið tiltölulega fátíð í Evrópu og Norður-Ameríku á síðustu áratugum.

Fyrir opnun vallarins hönnuðu flugferlahönnuðir Avians nýja RNP aðflugs- og brottflugsferla. Hönnun hefðbundinna ferla sem byggja á leiðsögubúnaði á jörðu niðri tafðist hins vegar vegna þess að hluti búnaðarins var ekki tilbúinn til notkunar auk áskorana sem flókið landslag í kringum flugvöllinn skapaði. Stefnt er á að klára flugprófun á leiðsögubúnaði og þeim ferlum sem eftir eru í haust.

Opnun flugvallarins markar tímamót fyrir samgöngur á Suður-Grænlandi og bætir verulega aðgengi íbúa, atvinnulífs og ferðamanna að svæðinu.

   Nýi flugvöllurinn í Qaqortoq sumarið fyrir opnun. (Heimild: Mynd fengin hjá Greenland Airports)
Nýi flugvöllurinn í Qaqortoq sumarið fyrir opnun. (Heimild: Mynd fengin hjá Greenland Airports)
Mynd úr flugferlahönnunartóli Avians af fráhvarfsflugi BGQO RNP RWY 11
Mynd úr flugferlahönnunartóli Avians af fráhvarfsflugi BGQO RNP RWY 11
Aðflugskort fyrir BGQO. (Heimild: AIP Greenland)
Aðflugskort fyrir BGQO. (Heimild: AIP Greenland)

Ilulissat – ný 2.200 metra flugbraut

Í framhaldi af Nuuk og Qaqortoq hefur Avians unnið að hönnun flugferla fyrir nýja 2.200 metra flugbraut í Ilulissat (BGJN). Verkefnið er nú á lokastigi og stefnt er að opnun flugvallarins 29. október 2026.

Líkt og í Nuuk hafa flugferlahönnuðir Avians hannað bæði hefðbundna aðflugsferla (ILS) og aðflugsferla sem byggja á hæfisbundinni leiðsögu (PBN/RNP), auk RNP-brottflugsferla fyrir nýju flugbrautina. Við hönnun flugferlanna þurfti að taka tillit til krefjandi landslags og þátta sem einkenna svæðið eins og mögulegra borgarísjaka í nágrenni flugvallarins.

Þegar nýja flugbrautin verður tekinn í notkun mun Avians hafa séð um hönnun flugferla fyrir allar þrjár stærstu flugvallaframkvæmdir Grænlands á síðustu áratugum.

Nýja 2200m flugbrautin í Ilulissat. Heimild: Greenland Airports (birt á LinkedIn, desember 2025).
Nýja 2200m flugbrautin í Ilulissat. Heimild: Greenland Airports (birt á LinkedIn, desember 2025).
Nýja og gamla flugbrautin í Ilulissat. Heimild: Greenland Airports (birt á LinkedIn, desember 2025).
Nýja og gamla flugbrautin í Ilulissat. Heimild: Greenland Airports (birt á LinkedIn, desember 2025).
Drög að korti fyrir nýtt BGJN RNP RWY 06
Drög að korti fyrir nýtt BGJN RNP RWY 06

Nýtt loftrými, MVA og uppfært leiðakerfi

Samhliða hönnun flugferla fyrir nýju flugvellina komu flugferlahönnuður Avians að vinnu við að teikna upp ný TMA í kringum Nuuk ásamt því að reikna kögunarhæðir innan svæðisins. Einnig hefur Avians séð um að uppfæra leiðarflugsleiðir til og frá Nuuk og Qaqortoq sem þegar hafa verið teknar í notkun. Fleiri leiðir eru í vinnslu m.a. frá Qaqortoq til Kulusuk og austur til Íslands og Evrópu.

(ATCSMAC) fyrir Nuuk TMA. (Heimild: AIP Greenland)
(ATCSMAC) fyrir Nuuk TMA. (Heimild: AIP Greenland)
Yfirlitskort af nýjum leiðaflugsleiðum til og frá Nuuk og Qaqortoq.
Yfirlitskort af nýjum leiðaflugsleiðum til og frá Nuuk og Qaqortoq.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.