Fara á efnissvæði
Til baka

Dróna­bann yfir 60 metra hæð yfir jörðu

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa, að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna fyrir hönd lögreglunnar á Suðurnesjum, bannað drónaflug ofar en 60 metrum yfir jörð. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 23. september nk.

Bannið er á svæði innan hnita 63°50'00"N 022°26'55"W, 63°55'50"N 022°25'53"W, 63°55'55"N 022°19'11"W, 63°51'43"N 022°19.15"W, 63°50'00"N 022°22'25"W. Svæðið nær yfir eldgosasvæðið á Reykjanesi ásamt Grindavík. Svæðið má sjá á mynd.

Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 23. september nk. Undanþágubeiðnir berist Aðgerðarstjórn Almannavarna á Suðurnesjum í netfangið [email protected].

Fréttin var uppfærð 29. ágúst með nýrri staðsetningu og framlengdum gildistíma.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.