Vel heppnað tilraunaverkefni um notkun dróna við fiskveiðieftirlit og fleira sem fór fram sumarið 2026, á vegum Landhelgisgæslu Íslands (LHG) í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) og Portúgalska drónafyrirtækisins Tekever, er nú lokið.
Verkefnið snerist um notkun dróni í fjölþættum tilgangi við að sinna skyldum Landhelgisgæslunnar innan lögsögu Íslands.
Dróninn er af tegundinni Tekever AR5 með 7 metra vænghaf og flaug á um 60 hnúta hraða og er búinn margskonar hátæknibúnaði og mælitækjum auk ADS-B + SSR (Mode C) ratsjársvara. Drónanum er stjórnað í gegnum gervihnött af fjarflugmönnum Tekever frá Hornafjarðarflugvelli út á haf.
Vegna verkefnisins voru útbúin og auglýst notkun hættusvæða fyrir flug drónans frá sjávarmáli upp í 3000 til 5000 fet.
Mikil ánægja er með verkefnið. EMSA, Landhelgisgæslan og Tekever þakka Samgöngustofu, Avians og Isavia Innanlandsflugvöllum kærlega fyrir veitta aðstoð.
