Fara á efnissvæði
Til baka

Av­ians & Isa­v­ia Inn­an­lands á Arct­ic Circle 2026

Fjartækni í flugþjónustu í sviðsljósinu á Arctic Circle

Avians tók þátt í Arctic Circle í Hörpu á dögunum þar sem fjallað var um hvernig fjarturnstækni getur nýst til að tryggja örugga, áreiðanlega og skilvirka flugþjónustu á afskekktum svæðum og á Norðurslóðum.

Sigrún Jakobsdóttir og Sævar Birgisson fluttu erindi á málstofunni og Ingi Sturla Þórisson stýrði henni og umræðum. Á málstofunni voru tvö verkefni á Íslandi notuð sem raunhæf dæmi um mismunandi möguleika fjartækni í flugþjónustu.

Sigrún fjallaði um uppbyggingu innanlandsflugvallakerfisins og þær áskoranir sem fylgja rekstri lítilla flugvalla víða um land. Flugvellirnir gegna mikilvægu hlutverki fyrir samfélög, atvinnulíf, ferðaþjónustu og viðbragðsþjónustu en umferð um marga þeirra er takmörkuð og aðstæður oft krefjandi.

Í því samhengi kynnti hún Remote AFIS verkefnið sem nú er í þróun fyrir Húsavíkurflugvöll. Þar er gert ráð fyrir að flugupplýsingaþjónusta við flugvöllinn verði veitt frá Egilsstaðaflugvelli með aðstoð myndavélakerfa, fjarskipta, veðurupplýsinga og fjarstýringar á búnaði flugvallarins. Verkefnið er dæmi um hvernig nýta má sameiginlega innviði og sérþekkingu til að þjónusta smærri flugvelli með nýjum hætti.

Sævar tók því næst við og fjallaði um fjarturnsverkefnið á Reykjavíkurflugvelli og tæknina sem þar er verið að innleiða. Með fjarturnstækni er hægt að veita flugumferðarþjónustu frá öðrum stað en flugvellinum sjálfum með víðsjár- og hreyfanlegum myndavélum, hljóðkerfum, fjarskiptakerfum og sérstökum vinnustöðvum flugumferðarstjóra.

Tæknin býður jafnframt upp á möguleika sem geta aukið yfirsýn flugumferðarstjóra, meðal annars með aðdrætti myndavéla, rakningu, myndvinnslu og samþættingu upplýsinga úr öðrum kerfum.

Tækifæri fyrir flugþjónustu á Norðurslóðum

Aðstæður á Íslandi eiga margt sameiginlegt með öðrum svæðum á Norðurslóðum þar sem langar vegalengdir, dreifð byggð, krefjandi veður og lítil flugumferð geta gert hefðbundinn rekstur flugþjónustu bæði flókinn og kostnaðarsaman.

Verkefnin á Húsavík og Reykjavíkurflugvelli gefa því tækifæri til að skoða hvernig fjartækni getur nýst víðar til að tryggja mikilvæg flugsamgöngutengsl og styðja við rekstur flugvalla á afskekktum svæðum.

Málstofan á Arctic Circle var þannig ekki eingöngu um tæknina sjálfa heldur einnig um hvernig nýjar lausnir í flugþjónustu geta stutt við tengingar samfélaga og framtíð flugs á Norðurslóðum.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.