Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að setja á tímabundið bann við flugi ómannaðra loftfara (dróna) eða annarra fjarstýrðra loftfara vegna almannaöryggis og öryggisgæslu.
Gildistími drónabannsins er frá og með kl 17:00 að kvöldi mánudags 5. október til kl 16:00 þriðjudaginn 6. október 2026.
Óheimilt verður að fljúga dróna, eða öðrum fjarstýrðum loftförum, innan rauðþekjaðs svæðis á fyrrgreindu tímabili.
Ómönnuðum loftförum, drónum og öðrum fjarstýrðum loftförum er óheimilt að vera á lofti eða í 500 metra radíus frá lögreglufylgd bílalestar.
Lögreglan mun starfrækja drónahópa sem munu sinna löggæslu og eftirliti úr lofti. Virkt eftirlit verður haft með óleyfilegu drónaflugi.
Óheimilt flug getur varðað sektum og haldlagningu búnaðar.
Bannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar nr. 1360/2024.
Hnit:
1) 64° 7.854′ N, 21° 53.022′ W
2) 64° 8.317′ N, 21° 56.397′ W
3) 64° 8.779′ N, 21° 57.320′ W
4) 64° 9.356′ N, 21° 56.297′ W
5) 64° 9.287′ N, 21° 52.850′ W
Hér að neðan má sjá yfirlitskort af drónabannsvæði:

