Fara á efnissvæði
Til baka

Und­ir­bún­ing­ur sól­myrkva hjá Av­ians

Mikill mannfjöldi kom til Íslands að fylgjast með almyrkva á sólu 12. ágúst síðastliðinn. Fram hefur komið í umfjöllun um atburðinn að um 75 þúsund hafi komið með flugi til landsins og 53 þúsund með skemmtiferðaskipum.

Mikill mannfjöldi kom til Íslands að fylgjast með almyrkva á sólu 12. ágúst síðastliðinn. Fram hefur komið í umfjöllun um atburðinn að um 75 þúsund hafi komið með flugi til landsins og 53 þúsund með skemmtiferðaskipum.

Undirbúningur hófst snemma árs

Avians hóf undirbúning fyrir Sólmyrkvann snemma árs. Þegar varð ljóst að álag yrði í tengslum við flug á almyrkvadeginum. Gefið var út upplýsingabréf í flugmálahandbók þar sem óskað var eftir upplýsingum frá flugrekendum og flugmönnum um fyrirhugað flug. Í framhaldinu var vakin athygli notenda þjónustunnar á útgáfunni og málin rædd við notendur loftrýmisins.

Avians stýrði samráðsfundum með Almannavörnum, Lögreglu, flugfélögum innanlands og forsvarsmönnum grasrótar í flugi auk Isavia samsteypunnar til að auka upplýsingaflæði meðal notenda loftrýmis og þjónustuveitanda vegna sólmyrkvans. Fyrirhuguð flug voru rýnd, sem og leiðir til að tryggja flugöryggi. Gefin var út fréttatilkynning á avians.is og starfsfólk upplýst.

Aukið viðbúnaðarstig í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjarvík

Búist var við auknu álagi vegna sólmyrkvans og var starfsfólki á vakt í Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur því fjölgað þannig að sautján flugumferðarstjórar, þrír fluggagnafræðingar og aðalvarðstjóri voru á vaktinni. Samhæfingastöð Almannavarna var einnig mönnuð starfsmanni á vegum Avians meðan á sólmyrkva stóð. Samkvæmt Steinunni Verklagsstjóra flugu ellefu einkavélar frá Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli vestur fyrir land þar sem flugumferðarstjórar brugðust við óskum þeirra um hæðir og flugleiðir til að sjá sólmyrkvann sem best.

Töluvert álag skapaðist fyrir og meðan á sólmyrkvanum stóð og eftir að honum lauk jókst það enn frekar ásamt öðrum tilfallandi störfum. Einnig kom upp að leita þurfti að þyrlu vegna tilkynningar frá neyðarsendi sem barst í gegnum gervihnött. Við eftirgrennslan kom í ljós að þyrlan var á jörðu niðri í uppsveitum suðurlands og engin hætta á ferðum. Vel þjálfað og hæft starfsfólk leysti verkin með sóma.

Mynd frá vaktinni í flugstjórnarmiðstöð þann 12. ágúst
Mynd frá vaktinni í flugstjórnarmiðstöð þann 12. ágúst

Góður undirbúningur skilaði sér

Þetta var óvenjuleg vakt og verkefnin sem þurfti að leysa fjölbreytt. Starfsmenn Avians stóðu sig vel við krefjandi aðstæður og veittu framúrskarandi og hnökralausa þjónustu. Það sýndi sig að góður undirbúningur og samvinna lykilaðila í flugi er nauðsynlegur.

Kjartan Briem framkvæmdastjóri Avians vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu með Avians að skipulagningu og framkvæmd við sólmyrkvann 2026.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.