Fara á efnissvæði
Til baka

Við­bótar dróna­bann

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir og umhverfis eldgosasvæðið á Reykjanesi. Bannið gildir til 08:00 að morgni mánudagsins 26. ágúst nk.Bannið er á svæði sem nær í fjögurra sjómílna radíus umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W.

Bannið er til viðbótar við fyrra bann sem gildir til miðnættis 28. ágúst 2024.

Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.