Fara á efnissvæði

Ís­lenska flug­stjórn­ar­svæð­ið

Avians sér um flugleiðsögu og flugumferðarþjónustu fyrir hönd íslenska ríkisins í íslenska flugstjórnarsvæðinu en einnig í efra loftrými grænlenska flugstjórnarsvæðisins.

Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) hefur falið sjö ríkjum að sjá um flugumferðarþjónustu yfir Norður-Atlantshafi, svæði sem kallast NAT region. Þessi lönd eru Bretland, Ísland, Kanada, Noregur, Bandaríkin, Danmörk og Portúgal.

Íslenska flugstjórnarsvæðið ber alþjóðlegu skammstöfunina BIRD. BIRD ásamt efra loftrými grænlenska flugstjórnarsvæðisins ber heitið "Reykjavik Control Area" sem nær yfir svæði frá 61°N að Norðurpólnum, frá 76°W að 30°E. Neðri mörk stjórnaða svæðisins eru breytileg, allt frá jörðu og að 20.000 fetum yfir sjávarmáli þar sem þau eru hæst, en efri hæðarmörk eru engin.

Um þriðjungur flugumferðar á leið yfir Norður-Atlantshafið fer í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið sem er í umsjá Avians.

Til stjórnunar flugumferðar í svæðinu eru notuð kögunargögn frá ratsjárstöðvum og svokölluðum ADS-B stöðvum sem staðsettar eru víðsvegar um Ísland, við Sumburgh í Skotlandi (SUM), á tveimur stöðum í Færeyjum (FAE) og átta stöðum á Grænlandi. Einnig er notast við geimkögun (Space-based ADS-B), þannig að kögunardrægi nær nú yfir allt íslenska flugstjórnarsvæðið.

Flugumferðarþjónustu á flugvöllum má skipta í tvo flokka, annars vegar flugstjórnarþjónustu (flugturnsþjónusta og aðflugsstjórnarþjónusta) og hins vegar flugupplýsingaþjónustu. Á Keflavíkur-, Reykjavíkur- og Akureyrarflugvelli er veitt flugstjórnarþjónusta, en á öðrum áætlunarflugvöllum er veitt flugupplýsingaþjónusta.

Aðliggjandi svæði

  • Skosku svæðin Shanwick (EGGX) og Prestwick (EGPX)
  • Kanadísku svæðin Gander (CZQX) og Edmonton (CZEG)
  • Rússneska svæðið St. Petersburg (ULLL)
  • Norsku svæðin Bodö (ENOB) og Norway (ENOR)

Helstu flugvellir í svæðinu

Helstu flugvellir í svæðinu eru í Keflavík, Reykjavík, Akureyri, Vågar í Færeyjum, Kangerlussuaq og Thule á Grænlandi.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.