Mannauðurinn gegnir lykilhlutverki í vegferð Avians. Við leggjum áherslu á að byggja upp starfsumhverfi sem mætir þörfum okkar og menningu sem styður liðsheild, ábyrgð og fagleg vinnubrögð. Jafnframt leggjum við áherslu á uppbyggileg samskipti, hvatningu, virðingu og gleði í störfum. Þannig náum við árangri.
Vinnustaðurinn
Hjá Avians starfa um 330 einstaklingar, þar af um 30 nemar ýmist í flugumferðarstjórn, flugfjarfjarskiptum eða fluggagnafræði.
Stærsta starfsstöðin okkar er að Nauthólsvegi 66, en við erum einnig með minni starfsstöðvar í Sóleyrjarima, þar sem flugfjarskiptadeild okkar er staðsett, og í Steinhellu í Hafnarfirði, þar sem hluti af CNS-kerfum er staðsettur.
Stefna okkar er að vinnustaðurinn sé líflegur og áhugaverður, þar sem aðbúnaður og aðstaða eru eins góð og kostur er. Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi sem einkennist af gagnkvæmum sveigjanleika þar sem þarfir starfs og fjölskylduábyrgðar fara saman.
Fyrirtækjamenningin er okkur mikilvæg. Við leggjum áherslu á samvinnu, uppbyggileg samskipti, fagmennsku, hvatningu, jákvæðni, virðingu og gleði í starfi.
Við gerum kröfu til allra sem sinna stjórnunar- og leiðtogahlutverki að þau komi fram af virðingu, stuðli að valdeflingu, séu hvetjandi og byggi upp traust og góða liðsheild. Stjórnendur og leiðtogar ganga fram með góðu fordæmi með því að hafa skýra framtíðarsýn og veita reglulega uppbyggilega endurgjöf til starfsfólks um stefnu, hlutverk, árangur og markmið í starfi.
Mannauðs- og jafnréttisstefna
Mannauðs- og jafnréttisstefnan tekur til allrar starfsemi Isavia samstæðunnar og þar á meðal Avians, starfsfólk skal virða hana í öllum störfum sínum fyrir félagið. Mannauðs- og jafnréttisstefnan byggir á stefnu Isavia.
Við gætum fyllsta réttlætis við ákvörðun launa og tryggjum að allt starfsfólk fái greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni. Við skuldbindum okkur til að innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi viðkröfur jafnlaunastaðalsins og íslenskra laga hverju sinni.

