Ertu sérfræðingur í að halda utan um vaktir og skipulag?

Við leitum að öflugum og skipulögðum sérfræðingi til liðs við skrifstofu flugstjórnarmiðstöðvar þar sem þú gegnir lykilhlutverki í daglegu skipulagi og mönnun vakta flugumferðarstjóra og fluggagnafræðinga.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem engir tveir dagar eru eins. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa gaman af skipulagi, hraða og mannlegum samskiptum og vilja vinna í umhverfi þar sem yfirsýn, lausnamiðuð hugsun og jákvæðni skipta máli.
Í starfinu sinnir þú meðal annars vaktaskipulagi, breytingum á vöktum og daglegum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur. Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem nær að halda ró og yfirsýn í kraftmiklu starfsumhverfi og hefur ánægju af því að láta hlutina ganga upp.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með útgáfu vaktaskrár starfsfólks flugstjórnarmiðstöðvar
- Almenn skjalavinnsla, útgáfa og dreifing skjala
- Þátttaka í verkefnahópum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi háskólamenntun er kostur
- Reynsla af vaktaskipulagi er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
- Þekking og reynsla á Word og Excel
- Góð samskiptafærni
Um tímabundna stöðu er að ræða til 12–18 mánaða.
Frekari upplýsingar veitir Arnar Sigurðsson í gegnum netfangið [email protected]