Heimsálfa á milli
Hlutverk Avians er að veita íslenskum og erlendum loftförum flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu og á íslenskum flugvöllum. Algengt er að skipta flugleiðsöguþjónustu (ANS) í eftirfarandi grunnþjónustur:
- Flugumferðarþjónustu (ATS)
- Flugstjórnarþjónustu (ATC)
- CNS þjónustu sem skiptist: Fjarskiptaþjónustu (COM), Leiðsöguþjónustu (NAV), Kögunarþjónustu (SUR)
- Flugveðurþjónustu (MET)
- Upplýsingaþjónustu flugmála (AIS)
Að auki tilheyra eftirfarandi þjónustur starfsemi Avians:
- Loftrýmisstjórnun (ASM)
- Flæðisstjórnun flugumferðar (ATFM)
- Gagnaþjónusta (DAT)
- Flugferlahönnun (FPD)
Flugleiðsöguþjónusta
Hjá Avians starfa um 270 manns, þar af eru um 100 flugumferðarstjórar, 20 fluggagnafræðingar, 40 flugfjarskiptamenn, 60 tæknimenn og um 15 manns sem sinna öryggis- og gæðamálefnum, kennslu og þjálfun, rannsóknum og þróun og stjórnun.
Kostnaður flugleiðsöguþjónustu er að langstærstum hluta greiddur af notendagjöldum, annars vegar yfirflugsgjöldum og hins vegar af notendagjöldum í innanlandsflugi og aðflugi. Fyrir yfirflugsgjöld og alþjóðaflugþjónustuna gildir svokallaður Joint Finance samningur við Alþjóðaflugmálastofnunina (ICAO) sem er aðildarsamningur 23 ríkja þar sem fjármögnun á flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu er skilgreind. Alþjóðaflugmálastofnunin hefur yfirumsjón með framkvæmd samningsins en árlega halda Avians og stofnunin upplýsingafundi með fulltrúum notenda þar sem farið er yfir þjónustuna og þróun kostnaðar.
Á Norður-Atlantshafi hafa fyrirtæki sem veita flugleiðsöguþjónustu með sér formlegt samráð undir hatti North Atlantic Systems Planning Group, NAT/SPG, sem er ein af nefndum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Á þeim vettvangi er ákveðið hvernig þjónustunni skal háttað, fylgst með öryggis- og gæðamarkmiðum og þróun nýrrar tækni og aðferðafræði í flugleiðsögu. Samtök flugrekenda og fagfélaga taka virkan þátt í því starfi.
