Fara á efnissvæði

Flug­próf­an­ir

Avians veitir ýmsa sérhæfða þjónustu á sviði flugmála m.a. flugprófanaþjónustu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.

Flugvél Avians, TF-FMS, er skrúfuþota af gerðinni Beechcraft King Air B200 árgerð 1985.
Flugvél Avians, TF-FMS, er skrúfuþota af gerðinni Beechcraft King Air B200 árgerð 1985.

Avians veitir flugprófaaþjónustu fyrir allan flugleiðsögubúnað sem er í rekstri hjá Isavia samstæðunni ásamt flugleiðsögubúnaði á Grænlandi og í Færeyjum. Tilgangur flugprófananna (e. Flight Inspections) er að tryggja nákvæmni og áreiðanleika flugleiðsögubúnaðar. Þessar prófanir þarf að framkvæma reglulega samkvæmt viðkomandi reglugerðum. Ef flugleiðsögubúnaður fellur á tíma sem gefinn er fyrir reglubundnar skoðanir eða skyndileg bilun á sér stað getur það haft bein áhrif á þjónustustig flugvalla og jafnvel leitt af sér lokun flugvallar við ákveðin skilyrði. Viðbragðstími þjónustu skiptir því verulegu máli. Þessu samhliða er veitt þjónusta til vottunar á flugferlum (e. Flight Validation) sem þarf að fara fram þegar ný eða breytt hönnun flugferla hefur átt sér stað samkvæmt viðkomandi reglugerðum. Avians ber ekki skylda til að veita þessa þjónustu við Grænland og Færeyjar en hefur verið mikilvægur þáttur í farsælu samstarfi þessara þjóða á sviði flugmála í yfir 25 ár, eða frá því um 1998.

Flugvél Avians

Flugvél Avians, TF-FMS, er skrúfuþota af gerðinni Beechcraft King Air B200 árgerð 1985 og sérútbúin með Raisbeck og High Flotation Gear sem eykur afkastagetu vélarinnar, sérstaklega hvað varðar styttri og grófari flugbrautir. Vélin hefur verið í notkun hjá Avians síðan 1997. Áhöfn vélar við flugprófanir hverju sinni er samsett af tveimur flugmönnum og einum til tveimur sérhæfðum tæknimönnum flugprófana en það fer eftir flækjustigi og umfangi verkefna. Að jafnaði krefjast verkefnin einungis eins tæknismanns flugprófana.

Flugrekstur Avians heyrir undir svokallaða SPO/NCC(Special Operation) reglugerð EASA. Þessi reglugerð er meira sniðin að verkflugi og fellur betur að starfsemi Avians heldur en hefðbundið flugrekstrarleyfi. Flugvélin er fyrst og fremst notuð til reglubundinna flugprófana á hefðbundnum flugleiðsögubúnaði sem og til prófunar og fullgildingar á nýrri flugferlahönnun. Avians er yfirlýstur flugrekandi í verkflugi (SPO) og NCC og hefur leyfi frá TBST til að sinna flugprófunum á Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi og Svíþjóð.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.