Avians veitir íslenskum og erlendum loftförum flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Avians er dótturfélag Isavia ohf. og sinnir flugleiðsöguþjónustu í innanlands- og alþjóðaflugi í flugstjórnarsvæði yfir Íslandi og Norður - Atlantshafi sem kallast á ensku "Reykjavik Control Area".
Íslenska flugstjórnarsvæðið er um fimm og hálf milljón ferkílómetrar að stærð og er það eitt stærsta flugstjórnarsvæði heims. Svæðið nær frá Greenwich-lengdarbaugnum í austri og vestur fyrir Grænland, frá Norðurpólnum og suður fyrir Færeyjar, langleiðina til Skotlands.
Að meðaltali fara um 550 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring.
