Avians annast rekstur flugleiðsöguþjónustu á Íslandi og er stærsti starfsvettvangur flugumferðastjóra á Íslandi. Flugumferðarstjórar stýra flugumferð á flugvöllum á Íslandi og í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er eitt það stærsta í heiminum.
Þjálfun Avians
Avians rekur sértæka þjálfundardeild fyrir flugumferðarstjórn, flugfjarskipti, fluggagnafræði og flugupplýsingaþjónustu.

Til þess að hefja nám í flugumferðarstjórn þurfa einstaklingar:
- Að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.
- Æskilegast er að umsækjendur séu á aldrinum 18 – 35 ára.
- Tala og rita mjög góða íslensku og ensku. Viðkomandi þarf að ná að lágmarki CEFRL stigi B2.
- Að vera góðir í mannlegum samskiptum og starfa í hópi.
- Að vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og eiga gott með að taka ákvarðanir.
- Að standast læknisskoðun og skimun fyrir geðvirk efni skv. reglugerðarkröfum um flugumferðarstjóra.
- Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og einkunnum úr námi.
- Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og einkunnum úr námi.
Nám hjá þjálfun Avians í flugumferðarstjórn er frábrugðið flestu námi. Námið skiptist í þrjá hluta; grunnnám, áritunarnám og starfsþjálfun og stífar kröfur eru gerðar um námsárangur í hverjum hluta.
Grunnnám er kennt í staðnámi og stendur yfir í um 25-30 vikur. Grunnnámið skiptist í undirstöðu-og réttindaþjálfun sem eru bókleg og verkleg kennsla sem samanstendur af námskeiðum um flugleiðsögu, veðurfræði, flugleiðsögukerfi, flugvélar, mannþáttafræði, lög flugleiðsögu, vinnuumhverfi flugumferðarstjóra og fleira.
Að loknu grunnnámi hefst áritunarnám. Áritunarnámið er kennt í staðnámi ýmist hérlendis eða erlendis og samanstendur af fyrirlestrum og æfingum í flugstjórnarhermi. Einhver munur er á lengd námsins eftir því á hvaða starfsstöð viðkomandi er valinn á.
Deildarþjálfun samanstendur af bóklegri og verklegri kennslu hjá Avians og í framhaldi af því starfsþjálfun á starfsstöð. Starfsþjálfunin er einstaklingsmiðuð og er lágmarks og hámarkstími tilgreindur í þjálfunaráætlun, en ætla má að heildarnámstími til réttinda se u.þ.b 2 ár. Í starfsþjálfun fer nemi inn á vaktir og starfar undir handleiðslu flugumferðarstjóra. Í starfsþjálfun þarf nemi að uppfylla ákveðin framfaramöt reglulega sem hluta af námi sínu. Á meðan nemi er í starfsþjálfun fær hann greiddan mánaðarlegan námsstyrk. Avians skólinn innheimtir engin skólagjöld.
Nám í flugfjarskiptum er sérhæft nám og er eingöngu ein slík starfsstöð á Íslandi.
Helstu verkefni flugfjarskiptamanna er að miðla heimildum, taka við heimildabeiðnum, veðurlestur, taka við staðarákvörðunum og tíðniúthlutun. Starfið er fjölþætt og þurfa því flugfjarskiptamenn að standast árlega síþjálfun og hæfnismat.
Til að hefja nám í flugfjarskiptum þurfa einstaklingar að:
- Að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.
- Tala og rita mjög góða íslensku og ensku.
- Að vera góðir í mannlegum samskiptum og starfa í hópi
- Að vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og eiga gott með að taka ákvarðanir
- Undirganga lesblindu-, heyrnar- og ritvinnslupróf
Námið skiptist í 2 hluta:
- Fyrri hlutinn er blanda af bóklegri þjálfun og hermaþjálfun (10 vikur). Í bóklega hlutanum er farið yfir flugleiðsögu, veðurfræði, íslenska flugstjórnarsvæðið og margt fleira. Í hermaþjálfun fara nemar í æfingar sem undirbúa þau fyrir næsta fasa. Öllum bóklegum prófum skal ljúka með að lágmarki 75% árangri og er einn upptökuréttur
- Seinni hlutinn fer fram í flugfjarskiptasal þar sem nemar fá úthlutað kennara sem mun kenna þeim í vinnustöðu. Þessi hluti tekur að lágmarki 45 vaktir og lýkur með verklegu hæfnismati. Falli nemi í hæfnismati hefur hann einn upptökurétt
Störf fluggagnafræðinga felast m.a. í vöktun flugstjórnarkerfa fyrir flugstjórnarmiðstöð, samskiptum við flugrekendur, flugafgreiðsluaðila og flugmenn vegna flugáætlana o.fl. Fluggagnafræðingar sjá um afleysingu NOTAM skrifstofu þegar forföll verða og utan dagvinnutíma.
Þeir em standast lokapróf er boðið starf fluggagnafræðings. Unnið er á dag- og næturvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Tölvukunnátta og góður skrifhraði á tölvu æskilegur
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli
- Nýnemar þurfa að standast lesblindupróf
Námið skiptist í 2 hluta
- Fyrri hluti er bland af bóklegri þjálfun og hermaþjálfun (10 -12 vikur). Í bóklega hlutanum er farið yfir flugleiðsögu, veðurfræði, íslenska flugstjórnarsvæðið, flugstjórnarkerfin og margt fleira. Í hermaþjálfun fara nemar í æfingar sem undirbúa þau fyrir verklegt nám í Flugstjórnarmiðstöðinni með kennara. Öllum bóklegum prófum skal ljúka með að lágmarki 75% árangri. Lokaprófin í bóklega hlutanum eru tvö og það þarf að ná þeim báðum með lágmark 75% árangri og það er einn upptökuréttur á hvort próf.
- Seinni hluti náms fer fram í flugstjórnarsal þar sem nemar fá úthlutaðan kennara sem mun kenna þeim í vinnustöðu. Þessi hluti tekur að lágmarki 24-48 vaktir og lýkur með verklegu hæfnismati sem er tvískipt. Annars vegar í vinnustöðu og hins vegar í hermaumhverfi. Falli nemi í öðrum hvorum hluta hæfnismatsins þá hefur hann einn upptökurétt.
Nemendur eru á launum á námstímanum.
Starfið er mjög fjölbreytt og í stöðugri þróun og fara fluggagnafræðingar í síþjálfun nokkrum sinnum á ári til að halda sér við og læra nýjungar. Á 3.ára fresti þurfa fluggagnafræðingar að standast hæfnismat.
Flugradíómenn veita flugupplýsingaþjónustu á óstjórnuðum flugvöllum í umsjón Isavia um allt land.
Flugradíómaður ber ábyrgð á að veita örugga og skilvirka flugupplýsingaþjónustu við flugvelli, gerð og dreifingu veðurathuganna auk viðbúnaðarþjónustu. Hann er ábyrgur gagnvart þeirri umferð sem tilheyrir hans vinnustöðu og vinnur samkvæmt gildandi reglum og fyrirmælum.
Til þess að hefja nám í flugupplýsingaþjónustu og fá hæfnismat sem flugradíómaður þarf viðkomandi að hafa sótt um starf sem slíkur að undangenginni atvinnuauglýsingu.
Inntökuskilyrði:
- Að umsækjandi tali og riti gott íslenskt mál
- Að umsækjandi sé lipur í mannlegum samskiptum
- Að umsækjandi sé fær um að skilja og tala ensku
AFIS grunnnámskeið samanstendur af:
- Fjarnámi þar sem farið er yfir fjölmörg atriði þ.á.m :
- Bóklegu námi, 1 vika
- Verklegu námi, 1 vika
- Starfsþjálfun á vinnustað
- Vettvangsferðum til starfsstöðva sem tengjast starfsemi Isavia
Að loknu námi hjá þjálfun Avians, starfsþjálfun á viðkomandi flugvelli og hæfnismati er flugradíómaður tilbúinn til starfa við flugupplýsingaþjónustu á viðkomandi flugvelli.