Viðskiptavinir Avians eru flugfélögin sem fljúga um íslenska flugstjórnarsvæðið.
Avians veitir flugleiðsöguþjónustu fyrir innlenda og erlenda flugrekendur sem treysta á örugga, skilvirka og samfellda þjónustu á einu stærsla flugstjórnarsvæði heims.
Starfsemi Avians byggir á nánu og traustu samstarfi við flugfélögin, þar sem sameiginleg áhersla er lögð á flugöryggi, hagkvæmni, stundvísi og sjálfbærni í alþjóðlegu flugsamgöngukerfi. Með sérþekkingu, reynslu og stöðugri þróun þjónustunnar styðjum við við öruggt og skilvirkt flug milli heimsálfa.
Auk flugfélaganna á Avians í virku samstarfi við alþjóðlegar stofnanir á borð við ICAO og Eurocontrol, sem og íslenska hagaðila og flugsamfélagið í heild, til að tryggja samfellu, samræmi og framþróun í flugleiðsöguþjónustu.
