Fara á efnissvæði

Tækn­in

Tæknin á bak við flugleiðsögu

Avians hefur með höndum rekstur og framþróun tæknilegra innviða flugleiðsögu sem leggja grunn að flugsamgöngum Íslands, tengingum við umheiminn og flugi á milli heimsálfa. Starfsemin skiptir miklu máli fyrir samfélagið í heild, þar sem áhersla er lögð á víðtækt samráð við þá hagaðila sem treysta á þjónustu fyrirtækisins og verða fyrir áhrifum af starfseminni.

Flugleiðsöguþjónusta byggir á háþróaðri tækni, gögnum og sérhæfðri þekkingu sem þarf að virka hnökralaust allan sólarhringinn. Hjá Avians styður tæknin við alla flugferðina – allt frá því að flugvél er stýrt frá landgangi út á flugbraut, um flugtak, aðflug og yfirflug, og þar til lent er á ný.

Tæknilausnir Avians þjóna allri tæknilegri virðiskeðju flugleiðsögu og flugfjarskipta. Í flugstjórnarmiðstöðinni styðja kerfin við stjórnun flugumferðar í aðflugi og yfirflugi, þar sem samspil flugleiðsögukerfa, flugfjarskipta og rauntímaupplýsinga skiptir sköpum. Örugg og áreiðanleg fjarskipti milli flugvéla og flugumferðarþjónustu eru þar grundvallarforsenda öruggrar og skilvirkrar starfsemi.

Mikilvægur hluti flugleiðsögu byggir á samfelldu og sjálfvirku upplýsingaflæði. Tæknin styður miðlun flugupplýsinga bæði innan flugstjórnarmiðstöðvarinnar og milli flugstjórnarsvæða, þannig að allir viðeigandi aðilar hafi aðgang að sömu, uppfærðu upplýsingum á hverjum tíma. Flugrekstraraðilar senda inn flugáætlanir með óskum um flugleiðir, tímasetningar og aðstæður, sem nýtast flugumferðarstjórum við að stýra flugumferð á öruggan, skilvirkan og hagkvæman hátt, með heildaryfirsýn yfir flugumferð og aðstæður hverju sinni.

Í flugturnum og á flugvöllum styður tæknin við aðflugs- og lendingarkerfi, ljósakerfi flugbrauta, flugfjarskipti, veðurupplýsingar og önnur kerfi sem tryggja skýra samskipta- og upplýsingamiðlun og örugga hreyfingu flugvéla á jörðu og í lofti. Þessi samhæfða tækni tryggir samfellu í þjónustu frá fyrstu hreyfingu flugvélar á flugvelli og þar til ferðinni lýkur.

Í alþjóðlegu flugumhverfi er þessi starfsemi oft lýst með hugtökunum ATM (Air Traffic Management) og CNS (Communication, Navigation and Surveillance). Á mannamáli þýðir það að tæknin tryggir örugg fjarskipti, nákvæma leiðsögn og samfellda yfirsýn yfir flugumferð, með stuðningi hugbúnaðar og samþættra upplýsinga sem gera flugumferð örugga, fyrirsjáanlega og skilvirka.

Mikil áhersla er lögð á samfellu og áreiðanleika. Flugleiðsögu- og flugfjarskiptakerfi eru hönnuð með varaleiðum, stöðugri vöktun og reglulegu viðhaldi, því í þessari starfsemi má tæknin einfaldlega ekki bregðast.

Á bak við þessa tækni starfar stór og fjölbreyttur hópur tæknilegra sérfræðinga, verkfræðinga, hugbúnaðar-, net- og gagnasérfræðinga, rafvirkja og rafeindavirkja, auk verkefnastjóra. Í þverfaglegu samstarfi vinna þau að rekstri, þróun og stöðugum umbótum í flóknu og alþjóðlegu tæknilegu umhverfi.

Avians horfir jafnframt til framtíðar og tekur virkan þátt í rannsóknum, þróun og alþjóðlegu samstarfi á sviði flugleiðsögu og flugfjarskipta. Þar er unnið að þróun nýrra tæknilegra lausna sem styðja áfram við örugga og skilvirka flugumferð og tryggja að tækni, þekking og vinnulag þróist í takt við alþjóðlegar kröfur og framtíð flugmála.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.