Suluk
Suluk er grænlenskt einkahlutafélag í eigu Avians. Starfsmenn félagsins eru flugumferðarstjórar sem veita, ásamt flugumferðarstjórum frá Avians, aðflugs- og turnþjónustu á Kangerlussuaqflugvelli. Samningur er um þessa þjónustu milli Avians og grænlenska flugvallafyrirtækisins Greenland Airports.
Tern Systems
Tern Systems ehf. hefur í næstum 30 ár þróað hugbúnaðarlausnir fyrir stjórn flugumferðar en lausnir þróaðar af Tern Systems eru nú í notkun víða í Evrópu, Asíu og Afríku. Markmið Tern Systems er að vera í forystu þegar kemur að öryggi og nýsköpun í stjórnun flugumferðar í alþjóðlegu flugrými.
Starfsfólk Tern Systems brennur fyrir hugbúnaðarþróun og hefur metnað til þess að skapa framsæknar tæknilausnir með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi. Hjá Tern Systems starfa yfir 80 manns og er með höfuðstöðvar á Íslandi og skrifstofur í Ungverjalandi og Póllandi.
