Fara á efnissvæði

For­ysta

Höfuðstöðvar Avians
Höfuðstöðvar Avians

Framkvæmdastjórn

  • Kjartan Briem

    Framkvæmdastjóri

    Kjartan Briem er rafmagnsverkfræðingur M.Sc.EE. frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) með áherslu á fjarskipti. Kjartan hefur langa reynslu af alþjóðlegum samskiptum og starfaði í rúma tvo áratugi á fjarskiptamarkaðnum á Íslandi, lengst af sem stjórnandi á tæknisviði. Nú síðast starfaði hann sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Vodafone á Íslandi. Kjartan Briem tók við sem framkvæmdastjóri Avians í janúar 2021.

  • Þórdís Sigurðardóttir, Sviðsstjóri rekstrarsviðs

    Þórdís Sigurðardóttir

    Sviðsstjóri rekstrarsviðs

    Þórdís Sigurðardóttir, er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og hefur lokið réttindanámi í flugumferðarstjórn. Hún starfaði áður sem deildarstjóri flugstjórnarmiðstöðvar. Hún var ráðin sviðsstjóri 2020.

  • Hans Lilliendal Karlson, Sviðsstjóri tæknisviðs

    Hans Lilliendal Karlson

    Sviðsstjóri tæknisviðs

    Hans Lilliendal Karlson, er með B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá Ingeniørhøjskolen í Kaupmannahöfn (DTU) og Executive MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði áður hjá Veitum, þar sem hann sat í framkvæmdarstjórn frá 2016 og leiddi svið kerfisþróunar og stýringar. Þar áður starfaði hann hjá FLSmidth Automation í Danmörku og síðar á verkfræðistofum á Íslandi sem sérfræðingur og ráðgjafi innan orkugeirans. Hann var ráðinn sviðsstjóri tæknisviðs hjá Avians árið 2022.

  • Guðný Unnur Jökulsdóttir, Fjármálastjóri

    Guðný Unnur Jökulsdóttir

    Fjármálastjóri

    Guðný Unnur Jökulsdóttir er með B.Comm. gráðu í viðskiptafræði frá University of Calgary og M.SC. gráðu í fjármálastjórnun og upplýsingatækni frá Álaborgarháskóla.

  • Þórunn Auðunsdóttir, Mannauðsstjóri

    Þórunn Auðunsdóttir

    Mannauðsstjóri

    Þórunn Auðunsdóttir er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá University of Warwick. Þórunn starfaði áður við mannauðsmál hjá PwC, Össuri og Kviku. Hún var ráðin mannauðsstjóri Avians árið 2021.

Stjórn Avians

  • Stefán Sigurðsson, stjórnarformaður

    Stefán Sigurðsson

    Stjórnarformaður

    Stefán Sigurðsson, stjórnarmaður frá 2021 og stjórnarformaður Avians, er hagfræðingur frá Háskóla Íslands 1996 og með M.Sc. gráðu á sama sviði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2006. Stefán var forstjóri Sýnar, Vodafone á Íslandi á árunum 2014-2019 og þar á undan framkvæmdastjóri eignastýringar Íslandsbanka í sex ár, frá 2008-2014, átti sæti í framkvæmdastjórn bankans og ýmsum nefndum. Stefán situr einnig í stjórn Íslandsbanka, starfar að eigin verkefnum og ráðgjöf hjá Nordic Development. Stefán er óháður stjórnarmaður.

  • Valgerður Hrund Skúladóttir, stjórnarmaður

    Valgerður Hrund Skúladóttir

    Stjórnarmaður

    Valgerður Hrund Skúladóttir, fædd 1963, stjórnarmaður frá 2025, er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1987 og MBA frá University of Miami 1989. Valgerður var einn af stofnendum Sensa árið 2002 og gengdi störfum framkvæmdastjóra frá byrjun þar til í lok ágúst 2025. Áður starfaði Valgerður m.a. hjá Tæknivali 1994-2001, síðast sem framkvæmdastjóri Kjarnasviðs. Valgerður sinnir nú m.a. ráðgjöf og sinnir stjórnarstörfum. Valgerður er óháður stjórnarmaður.

  • Árni Birgisson, stjórnarmaður

    Árni Birgisson

    Stjórnarmaður

    Árni Birgisson, stjórnarmaður frá 2022, er með B.ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands 1995. Árni vann hjá Almannavörnum ríkisins sem sviðsstjóri samhæfingarsviðs frá 1996-2000 og sem upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu 2000-2001. Árið 2001 hjá forverum Isavia ohf. og starfar nú sem sérfræðingur í þjónustugæðum hjá Isavia. Árni er skipaður í stjórn af Isavia samstæðunni.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.