Um 70 starfsmenn Avians tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu síðastliðinn laugardag og hlupu til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Þátttaka starfsfólks fór fram úr öllum vonum og var frábært að sjá hversu margir vildu leggja sitt af mörkum. Hlauparar Avians settu sér sameiginlegt markmið um að safna einni milljón króna fyrir Ljósið en fóru vel fram úr því markmiði.
Reykjavíkurmaraþonið er ein stærsta og mikilvægasta árlega fjáröflun Ljóssins og því var sérstaklega ánægjulegt að geta sameinað krafta okkar og stutt við það mikilvæga starf sem þar er unnið á hverjum degi.
Ljósið varð fyrir valinu sem góðgerðarfélag Avians í hlaupinu enda snertir krabbamein með einum eða öðrum hætti líf flestra. Innan okkar raða er starfsfólk sem sjálft hefur glímt við krabbamein og aðrir sem hafa staðið við hlið ástvina í gegnum veikindi og meðferð. Málefnið stendur því mörgum nærri.
Við erum ótrúlega stolt af hópnum okkar og þakklát öllum þeim sem hlupu, gengu, hvöttu áfram og lögðu söfnuninni lið. Með sameiginlegu átaki tókst okkur ekki aðeins að fara langt fram úr markmiðinu heldur einnig að vekja athygli á og styðja við ómetanlegt starf Ljóssins.
Takk fyrir okkur og takk fyrir stuðninginn!
