Vegna löggæsludrónaflugs í tengslum við menningarhátíðina Ljósanótt 2026 hefur Samgöngustofa að beiðni Lögreglustjórans á Suðurnesjum, bannað allt drónaflug yfir Reykjanesbæ á milli eftirfarandi hnita:
A: 63°59′35″ N, 22°34′07″ W
B: 63°59′43″ N, 22°31′42″ W
C: 64°00′59″ N, 22°32′11″ W
D: 64°01′00″ N, 22°35′07″ W
E: 64°00′06″ N, 22°34′20″ W
Bannið gildir frá yfirborði (SFC) upp í 900 fet yfir sjávarmáli (AMSL).
Bannið gildir frá kl. 12:00 þann 4. september til kl. 08:00 þann 6. september 2026.
Undanþágubeiðnir skal senda til Lögreglustjórans á Suðurnesjum, í gegnum netfangið á [email protected]
Athugið að fyrir drónaflug innan helgunarsvæðis Keflavíkurflugvallar þarf einnig samþykki flugvallaryfirvalda https://www.kefairport.is/fyrirtaekid/umsoknir
