Fara á efnissvæði
Til baka

Av­ians inn­leið­ir hæfis­bundna leið­sögu (PBN)

PBN Transition Plan útgáfa 6 tekur gildi 01.11.2026. Töluverður árangur hefur náðst undanfarin ár við innleiðingu hæfnibundna leiðsögu (PERFORMANCE BASED NAVIGATION (PBN)) innan BIRD CTA.

Innleiðing í úthafssvæðinu er lokið í samræmi við stefnu NAT Region.

Unnið er að innleiðingu RNAV og RNP SID, STAR og aðflugsferla við flugvelli á Íslandi í samræmi við ytri kröfur.

Hluti af innleiðingu PBN snýr einnig að fækkun NDB vita auk þess að tryggja viðbragðsáætlun. Rétt er að benda á að ekki stendur til að fækka VORs eða DMEs vegna PBN innleiðingar.

Áætlun um innleiðingu hæfnibundinnar leiðsögu fyrir Ísland er uppfærð árlega að hausti. Áætlunin var unnin í samráði við notendur og flugvelli og er unnin í samræmi við reglugerð 444/2020 og framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnar ESB 2018/1048.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.