Isavia ANS starfar nú undir nýju nafni – Avians.
Með nafnabreytingunni tekur fyrirtækið upp nýtt vörumerki sem endurspeglar skýrar hlutverk þess og styrkir stöðu þess á alþjóðlegum vettvangi, án þess að breyting verði á starfsemi eða þjónustu.
Avians veitir flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu yfir Norður-Atlantshafi, sem er eitt stærsta flugstjórnarsvæði heims. Stór hluti flugumferðar milli Evrópu og Norður-Ameríku fer um svæðið og treystir á þá sérhæfðu þjónustu sem veitt er héðan, auk flugs til og frá Íslandi og innanlandsflugs.
Nýtt nafn – sama mikilvæga hlutverk
Nafnbreytingin er hluti af vegferð sem miðar að því að aðgreina flugleiðsöguþjónustu skýrar frá annarri starfsemi Isavia samstæðunnar og gera hlutverk fyrirtækisins skiljanlegra fyrir hagaðila, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi. Með nýju nafni og ásýnd er lagður grunnur að sterkari og sjálfstæðari ímynd félagsins.