Fara á efnissvæði
Til baka

Sól­myrkvi 12. ág­úst 2026

Mynd: Árni Guðbrandsson (deildarmyrkvi 29.mars 2025)
Mynd: Árni Guðbrandsson (deildarmyrkvi 29.mars 2025)

Sólmyrkvi gengur yfir Ísland síðdegis þann 12 ágúst. Almyrkvi verður á vesturhluta landsins en deildarmyrkvi sem hylur 95-99% sólar annarsstaðar á landinu.

Sjá nánar upplýsingar um myrkvann á vef Iceland at night.

Stjórnvöld hafa opnað sameiginlega upplýsingagátt með hagnýtum upplýsingum fyrir almenning vegna almyrkvans, þar á meðal um samgöngur, öryggi og þjónustu.

Á vefsíðu Samgöngustofu vegna almyrkvans má finna upplýsingar um reglur sem gilda í drónaflugi, útsýnisflugi og einkaflugi.

Veðurspár eru að skýrast og eru líkur á að sjónflugsskilyrði verði á vestanverðu landinu þennan dag. Því má búast við að fjöldi einkaflugvéla, fallhlífastökkvara og fisa verði á ferðinni til og frá þeim svæðum þar sem sólmyrkvinn varir sem lengst, Snæfellsnes hefur sérstaklega verið nefnt sem áfangastaður einka- og fisflugs.

Einnig má búast við töluverðu drónaflugi á vestari hluta landsins.

Lögreglan mun setja upp drónabannsvæði og eru þau birt á vef Samgöngustofu.

Samgöngustofa hefur veitt leyfi fyrir sleppingu léttra loftbelgja frá Þingeyri, Mosfellsbæ, Kleifarvatni og Snæfellsnesi. Sjá NOTAM.

Til að mæta auknu álagi hefur flugumferðarþjónustan verið mönnuð aukalega þennan dag og opnunartími AFIS á BIBD og BIIS lengdur, sjá NOTAM.

Öryggistilkynningar, hrós og aðrar ábendingar

Þarft þú að senda tilkynningu, viltu hrósa eða hefur þú aðrar ábendingar sem þú vilt koma á framfæri? Sendu okkur þá endilega línu.